Betra er að standa á eigin fótum en annarra
Dagsetning
27. janúar 2012
Gisting í Köben
07.03.2008 10:31:50 / Kiddý

Yndisleg prinsessa mætt á svæðið

Góðan daginn allir :haha:

Þá er hún loksins komin þetta gull sem við vorum að bíða eftir :haha: og hún er FULLKOMIN :d  Fæðingin gekk bara ágætlega, vorum komin upp á landspítala svona uppúr hádegi eftir að legvatnið fór. Síðan gekk þetta bara rólega fyrir sig og prinsessan lét sjá sig kl: 03:22 að staðartíma :d 19 merkur og 54 cm ;)
Öllum líður bara vel og ég vildi bara láta vita að við erum að vinna í barnalandssíðunni og það verða komnar myndir þar í dag :haha: Þanngað til getið þið skoðað hana á síðunni hennar Ásu systir :!:

Takk fyrir allar kveðjurnar elskurnar og reyni að vera dugleg að henda inn myndum:haha:
Kveðja FJÖLSKYLDAN á holtinu :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 17:06:09 / Kiddý

Nýjar fréttir...

Halló :)

Ég veit nú ekki hvort fólk nennir að fara ennþá hingað inn þar sem ég er búin að vera svo löt að blogga... EN ég set samt sem áður inn smá fréttir fyrir ykkur sem kíkja hingað ;)

Við vorum að koma úr skoðun í dag. Allt leit vel út, blóðþrýstingur, hjartsláttur og annað. Ljósan reyndi í þriðja skiptið að hreyfa við belgnum en það bara vill ekki láta hreyfa við sér þetta elskulega kríli :lol: Kollurinn er kominn ennþá neðar og skilur ljósan varla í því hvers vegna krílið komi bara ekki :haha:

Það var samt sem áður ákveðið að við verðum sett af stað á fimmtudaginn 8| Það er búið að panta tíma í þessa gangsetningu en vonandi lætur gullið sjá sig fyrr en það! en ef það gerir það ekki, þá verður það samt komið til okkar vonandi fyrir helgi :haha::haha:

Annað er ekki í fréttum nema að allir eru bara hressir og kátir...8)
Bless í bili...

» 35 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 20:43:02 / Kiddý

Ekkert að gerast....

Jæja!!!
Vegna fjölda áskoranna um að skrifa eitthvað á þetta blogg mitt ákváð ég að setja nokkrar línur inn svona fyrir ykkur forvitna fólkið :haha:

Hvað get ég sagt ykkur? litla krílið okkar átti að láta sjá sig þann 23 febrúar sl en hefur ákveðið að láta bíða eitthvað eftir sér foreldrum sínum til mikillar ama 8| Það verður nú að viðurkennast að þetta er ekki það skemmtilegasta í heimi að sitja og ,,bíða" og svara sömu elskulegu spurningunni aftur og aftur 8) ,,Hva er ekkert að gerast?" ,, Á ekkert að fara að koma með þetta kríli? " trúið mér, ef ég mætti ráða þá væri það löngu komið :haha:

Staðan er sem sagt sú að eftir tvær síðustu skoðanir er sagt að leghálsinn sé alveg lokaður, krílið orðið frekar stórt ( kemur ekkert sérstaklega á óvart ) :lol: en allt lítur voða vel út. Kollurinn á barninu er komið vel niður í grindina og ætti því að gera komið þaðan út :d. Ég er sjálf mjög hraust, blóðþrýstingurnn mjög fínn og allt bara í góðu standi, bara orðið frekar þreytt :$

Við fórum og prufa nálastungur, bowen og reyna að láta ýta við en það virðist vera sem það sé svo gott að búa ,inní" mér að það ætli bara að nýta sér allan tímann :haha: Næsta skoðun er svo á mánudaginn og ef allt er óbreytt þá, þá verð ég líklegast sett af stað í þeirri viku, þannig að krílið okkar kemur pottþétt í næstu viku :haha::haha:

Eins og þið getið ýmindað ykkur er gríðarleg spenna á heimilinu eftir litla gullinu og bíðum við spennt eftir að fá stingi og pílur :haha:

Ég ætlaði að setja inn bumbumynd en það verður að biða þar til ég opna barnalandssíðuna, en hún er tilbúin og verður opnuð um leið og krílið ákveður að mæta á svæðið ;) ég set linkinn hérna á síðuna.

Þá bið ég bara að heilsa ykkur elskurnar og takk fyrir allar kveðjurnar, og vona að eitthvað fari nú að gerast :$
Bestu kveðjur
Ofurgeðvonda ólétta konan sem hefur andúð á óléttuspurningum þessa dagana...:lol::lol:

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 19:51:03 / Kiddý

PRÓF ERU VIÐBJÓÐUR!!!

Sturla litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar. " Sturla minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurningar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?" "Enginn", svarar Sturla. "Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan? "Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Sturla Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar" Örstuttu seinna réttir Sturla litli upp hendi. "Já Sturla " "Má ég spyrja þig einnar spurningar?" "Endilega" segir kennslukonan. "Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Sturla Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað" "Neeiiii" segir Sturla litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar" :haha:

4 ljóskur voru að keyra til Disneylands og svo komu þær að skilti sem sagði
"Disneyland left" og þær séru við og fóru heim :haha:

Hafiði heyrt um Kínverjann sem var svo gráðugur að hann borðaði með prjónavél :haha:

Stal þessu af einni síðu.. Skemmtilegra en að læra :haha:

ÓGEÐISKVEÐJA... KIDDÝ, SEM ER AÐ BRJÁLAST....8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 02:24:53 / Kiddý

AFMÆLISBARN ;)

Afmælisbarn dagsins er engin önnur en hún yndislega móðir mín :D

Til hamingju með daginn elsku mamma , elska þig upp í topp...;)

Vonandi verður dagurinn góður og allir stjani við þig

Bestu kveðjur

Stórfjölskyldan úr Holtinu ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 09:38:16 / Kiddý

LOVE IT..

Held að það sé kominn tími á nokkrar línur...

Helstu fréttir:

Ef þið sjáið á reiki í kringum Háskóla Íslands einhvað sem lítur út eins og stór og mikil mörgæs, vaggandi með púst í tröppum skólanna þá skulu þið ekki vera hrædd! Mörgæsir hafa ekki herjað á landið heldur er þetta bara ég að reyna ennþá að rembast við að renna upp ljósu nike dúnúlpunni minni svo ég drepist ekki úr kulda ;8| Hún er samt sem áður orðin heldur þröng og það koma sá dagar að elskulegi rennilásinn vill ekki rennast... en þegar rennilásinn fer upp, þá er ég líka í hættu, vegna þess að ef loft kæmist undir úlpuna er ég nánast viss um að ég tækist á loft 8| en það væri eflaust bara stuð.. þá þyrfti ég allavega ekki að labba upp tröppurnar.. Ef þessi pæling sýnir ekki hvað ég er of mikið með sjálfri mér þá veit ég ekki hvað..  EN það er er bara gaman að þessu og allt þess virði :haha:

Fleiri fréttir:

Nú erum við alveg flutt og búin að skila gömlu íbúðinni ;) erum svona að leggja loka hönd á nýju íbúðina. Rosalegt magn á maður af drasli og dóti.. Rauði krossinn brosir eflaust hringinn þegar við erum búin að koma með alla pokana.. og ekki nóg með það, heldur er þetta örugglega svona tveir fyrir einn fyrir þá, jafnvel þrír fyrir einn. Því fyrir einn bol sem Kári gefur í þessi fátæku lönd, komast örugglega þrír afríkubúar  fyrir í honum!! Þannig að tæknilega séð þá erum við að gefa miklu meira en við höldum :D En ég læt það alveg vera að senda gamla skó nr 47 ½ í Rauða krossinn, veit ekki alveg hvað þeir hefðu við það að gera! Gætu kannski notað það sem fötur/ílát til þess að sækja vatn eða grjón! Þau gætu jafnvel haldið að þetta væri gæludýr! En ég veit ekki, ég kannski prufa að senda eitt par. Já svona græðir Rauði Krossinn á því hvað hann Kári minn er massaður :haha: En ég hikaði ekki við það að senda gömul föt af mér, og þá sérstaklega nærföt, þau eru öll svo lítil að það verður barist um þau handa grunnskólastelpunum :haha: (eða kannski bara stelpum, veit ekki alveg hvernig er þarna með grunnskóla) :$

Fleiri fréttir:

Ég hef svo sem ekkert að segja... nóg komið af bulli. Heilsan mín er bara góð og allt gengur bara mjög vel,  prófin eru búin 20 des hjá mér og 6 des :whut: hjá Kára. Bara svindl... en við ætlum að koma svo heim 22 des :haha: er orðin mjög spennt að koma í jólafrí og klára þessi próf.

Svo eru það eyjar næstu helgi.. og bara endalaus lærdómur, það þýðir víst ekkert annað þessa dagana.

Læt þetta duga í bili...

Hafið það gott elskurnar mínar 8)

Kveðja rugludallurinn..


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 14:47:44 / Kiddý

blablablabla...

Helstu fréttir!

Jæja þið fáu sálir sem eruð enn að reka nefið hingað inn, hérna koma smá fréttir :lol:

Hvar á ég að byrja.... Tíminn bara flýgur áfram, það er að koma októberlok og jólin eftir rúmlega 70 daga. Það þýðir líka að á þessum tíma á ég eftir að taka tvö lokapróf, sem er ekki eins skemmtilegt og að hlakka til jólanna. EN skólinn gengur bara ágætlega, ég er svona aðeins farin að tala við annað fólk og reyni að minnka kleinu átið í kaffitímanum, elska samt ennþá svala! Held áfram að labba upp þessar 62 tröppur á hverjum degi.. enda fín líkamsrækt :haha:

Ég er enn að vinna í Hreyfingu með skólanum, sem er bara ljómandi. Tvö kvöld í viku sem og auka um helgar ef það vantar 8) svo erum við líka að flytja í nýja stöð í glæsibæ núna í Des sem verður bara geggjuð.. og gaman að taka þátt í því ;) Allir að kaupa kort í Hreyfingu.. ég skal gefa ykkur smá afslátt!

Það er mikið um skemmtilegar breytingar hjá okkur litlu fjölskyldunni. Eins og flestir vita þá eru við að stækka :haha: já bara allt að gerast..Ég er komin tæpa 5 mánuði og litla gullið er væntanlegt þann 23 febrúar (eða 9 febrúnar samkvæmt pabba) :D og allir að kafna úr gleði og spennnig ! Einnig erum við í þessum orðum að flytja á fullu. Vorum að kaupa okkur yndislega 3 herbergja íbúð hérna rétt hjá :haha: verðum að koma stórfjölskyldunni fyrir :lol: við erum búin að selja gömlu íbúðina, og allt á fullu að græja og gera!

Nýja íbúðin var við viðtökur svo ógeðslega skítug og illa farin að, að ef ekki hefði verið fyrir krafthjónin á höfðaveginum, Krilla málara og auðvita Kára míns þá væri ekki hægt að búa þarna. Núna er búið að skipta um innihurðar, mála allt, skipta um klósett :haha: og siðast en ekki síst.. ÞRÍFA..:o

Pabbi eru auðvita eins og jarðýta..gekk frá og græjaði allt sem þurfti að  græja ;) eins og ég hef alltaf sagt.. maðurinn er töframaður! Mamma bjargaði mér frá því að vera að þrífa fram á næsta sumar, þar sem ég þreif á hraða snigilsins.. Núna er hægt að gefa börnum að borða af gólfinu, það er svo hreint :haha: Enda mútta ekki þekkt fyrir annað en að óaðfinnanleg þrif.  Krilli vinur okkar sló Evrópumet í að mála heila íbúð á ofurstuttum tíma, lakkaði glugga og hrissti þetta fram úr erminni. Kári minn ætti að vera komin í landsliðið í ofnamálun :haha: Einnig var hann traustur aðstoðarmaður töframannsins. Lilja kom svo að hjálpa okkur mömmu með þrifnaðinn og fékk það umdeilda hlutverk að þrífa ofninn.. OOJJJ..:haha:

Svo pössuðu allir uppá það að prinsessan væri ekki þreytt, myndi ekki teyja sig, gera of mikið, sofa nóg og ég veit ekki hvað og hvað... :$ Svona hjálpuðust allir að og allt gekk eins og í sögu.Þannig að ástarþakkir fyrir alla hjálpina elskunar mínar  ;) þúsund kossar.:D

Jæja veit svo sem ekki hvað ég á að segja ykkur fleira í bili.. þetta eru nú smá fréttir 8| Ég verð víst að halda áfram að raða í kassa og drífa þetta af..

Blogga fljótlega aftur...

Kveðja.. the happy family..

  

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 13:55:29 / Kiddý

Þetta reddast...

Hvað segiði? Allir komnir með leið á þessum brandara? Hann er samt svakalega fyndinn :D

EN okey.. ég set hérna nokkrar línur...

Núna er skólinn byrjaður... allaf fínt að byrja aftur og fá svo svona reglu á allt saman. Þessi önn verður samt sem áður frekar spes þar sem Ástrún mín, hinn helmingurinn er farin aftur á Ísafjörð og ætlar að vera þaðan í fjarnámi! Það er frekar fúlt, en hún er mjög löglega afsökuð þessi elska! Bergdís er síðan flutt til DK og aðrir sem ég þekki eru bara ekki með mér í þessum áföngum. Þannig að ég sit bara ein í öllum tímum og reyni að fylgjast ROSALEGA vel með, fer og fæ mér kleinu og svala í kaffinu, blóta því að þurfa að labba í hvert skipti upp á 4 hæð, sem eru nákvæmlega 62 tröppur og niður á neðstu hæðina að sækja kleinuna og svalann og svo aftur upp!  Svo þegar ég er loksins komin upp aftur með nestið, þá er ég orðin svo móð að ég kem því varla niður:$ En allt hefst þetta nú og einhvern vegin og hver dagur líður ágætlega hratt. Þetta er svona frekar tómlegt ennþá, en hver veit nema ég reyni að kynnast einhverju liði þarna8| En ekki misskilja mig, fögin eru mjög fín og námið skemmtilegt :haha::haha:

Þegar maður er svona frekar mikið einn með sjálfum sér yfir daginn þá pælir maður alveg í ótrúlegustu hlutum. Helstu atriði sem ég hef skoðað og pælt í síðustu daga eru t.d. afhverju einn kennarinn minn sé alltaf með uglu-nælu í sér! svona líka voða falleg ugla en  frekar spes að smella henni á öll dressin sín. Svo er það hvað ég vorkenni alltaf litla hvíta krulluhundinum sem er látinn hanga í bílnum á meðan kennarinn kennir. Held að honum leiðist þarna allan morguninn. Líka ennþá að pæla í því hvaða tungumál einn kennarinn sé að reyna að tala, þetta er svona samblanda af íslensku/dönsku/þýsku.. og ekki bætir það að þessi elska, MJÖG elskuleg kona, er svakalega smámælt!  En hún gerir sitt besta við að reyna að útskýra þetta ;). Einnig er ég voða forvitin um það hvaðan maðurinn með svarta hárið og taglið sé og afhverju hann glósi ekkert heldur bara situr og horfir á kennarann! Það er svo margt skrýtið fólk með mér í tímum. Kannski finnst þeim ég líka skrýtin, mar veit aldrei.. en það er mjög gaman að pæla svona í öllum í kringum sig.:D

En nóg af þessu bulli.. annars er bara allt gott að frétta frá holtinu, allir hressir og hver veit nema ég komi með skemmtilegar fréttir í næsta bloggi! Þarf að fá hlutina aðeins betur á hreint áður en ég skelli því á netið 8)

Bestu kveðjur, stelpan í íþróttafötunum sem situr lengst til vinstri næst aftast í öllum tímum og les fréttablaðið  með kleinu og svala :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 21:43:55 / Kiddý

Að reyna að slá á létta.. svona í miðjum próflestri :)

Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur sinnar og varð nokkuð
undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka vel til í öllu herberginu.
Hún sá að það var umslag á miðju rúminu og á því stóð:  TIL MÖMMU. 
Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi
reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann
er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana
sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til
hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það.
Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna
helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann er búinn að
segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo
innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir
engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að
við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og E-töflum
handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS
svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!! En ég bið þig að hafa ekki
áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig
sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er
að gera. Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll
barnabörnin þín.

Þín dóttir Guðrún.

 
PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt. Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita
að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu
skrifborðskúffunni. Ég elska þig.  Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir
mig að koma heim.


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 07:01:01 / Kiddý

13.Ágúst

Helstu fréttir...

Jæja þá held ég að það sé löngu komin tími á nýja færslu...

 

Þjóðhátíðin yfirstaðin og var hún eins og alltaf mjög skemmtileg, hefði nú samt getað verið í meira stuði, en ég varð svo óheppin að misstíga mig frekar illa snemma á föstudeginum sem endaði með ferð uppá spítala í myndartöku. Ég var sem betur fer ekki brotin heldur mjög illa tognuð, og hélt læknirinn jafnvel að liðbandið hefði trosnað! Síðan sagði hann mér að ég þyrfti að slappa af í 3-4 daga með löppina upp í loft.. AKKÚRAT... 8|Þá var ekkert annað í stöðunni að dæla í sig bólgueyðandi og láta binda á mér löppina.   En þetta reddaðist eins og allt.. ég er svo heppin að eiga besta kærastann sem passaði uppá sína eins prinsessu og mjög þolinmóða vini sem nenntu að labba, EXTRA hægt og nenntu að dröslast með mér :lol:Þið eruð öll bestust :haha:þúsund kossar...

 

En yfir í annað, nú eru allir fjölskyldumeðlimir mínir staddir í Tyrklandi að sóla sig.. Ása og co fóru með tengdó og mamma, pabbi og Bjartey fóru á fösudaginn til þeirra.. en ég.. já ætla ekkert að væla, ég er búin að fara í sumarfrí 8)En ég verð að segja að það er frekar mikið tómlegt! Held að ég biðji þær mæðgur um að fara næst ekki saman í frí nema taka mig með, :$ Þau eru á æðislegum hótelum og í reyndar frekar miklum hita en rosalega gaman hjá þeim og væri ég alveg til í að vera með þeim en alls ekki hitanum!

 

Sumarprófið  mitt fer að nálgast, ég er ekki alveg komin í gírinn er það fer að koma um leið og ég byrja! Skólinn hjá Kára að byrja á föstudaginn og finnst mér hann bara orðinn frekar spenntur enda örugglega mjög skemmtilegt nám ;)

 

Ég held að það sé nú voða lítið annað að frétta af okkur skötuhjúum í bili, en reyni að blogga næst með styttra millibili svo einhver nenni að kíkja hingað inn :D

 

Svo vil ég óska henni ömmu Ásu til hamingju með daginn í dag, þúsund kossar frá okkur og LUBA.. :haha:

 

Later....


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 08:01:27 / Kiddý

AUGLÝSI EFTIR ÞJÓÐHÁTÍÐARMIÐUM....

Jæjajæjajæja...

Ég verð nú að henda einhverju hérna inn, er orðin frekar þreytt á sama blogginu endalaust og hvað þá þið sem nennið að kíkja og kannski vonast eftir því að fá einhverjar fréttir !8)

 

Helstu fréttir.... auðvita það að þjóðhátíðardagskráin 2007 er komin og er alltaf gaman að sjá hana. Lýst bara nokkuð vel á hana, við erum orðin frekar spennt að mæta í dalinn, komum samt seint á fimmtudagskvöldinu en þá verður maður bara að hafa hraðar hendur og skella sér í djammgallann í Herjólfi og beint í party :haha:

 

En ef einhver býr svo vel að eiga auka þjóðhátíðarmiða þá auglýsi ég hér með eftir tveimur.... á verðbilinu 2000-2500 miðinn... myndi samþykkja það! Kannski fá bara fyrirfram jólagjöf??? Ha, einhver?? Eða bara ekki....8|8| 

Eins og það er nú gaman að fara á þjóðhátíð þá er þetta helvíti dýr pakki : miðar í dalinn, áfengi, maður kaupir alltaf einhvað nýtt drasl, og svo auðvita stjörnuljós og allar byssurnar sem Kári þarf að eyða í skraninu :haha:nei ég segi svona...;)

 

En yfir í annað.. hvað er málið með veðurblíðuna.?? Það er í lagi að hafa gott veður en ég er ekki mjög hrifin af því hvað það er bjart þegar maður er að reyna að sofa...ohh óþolandi, ég er alltaf á leiðinni í að fjárfesta í svona gleraugum sem maður setur á sig á nóttunni eða hvað þetta nú heitir, svo ég nái kannski EINNI NÓTT í sumar án þess að vakna skrillljón sinnum...:klikk:

 

Ég hef svo sem lítið að segja, goslokin voru síðustu helgi, voru þau bara ágæt , þetta er samt orðið meira svona eldri manna hátíð, án þess að móðga neinn. Ég myndi ekkert gráta ef ég myndi missa af henni næsta ár... tek bara þjóðhátíðna með trompi :P

síðan er bara endalaus vinna alla helgina og alveg þar til við komum 2. ágúst... en ég ætla ekki að kvarta yfir því svosem...;)

 

Hafið það bara gott þanngað til og sjáumst hress í dalnum J

Kv-Bella

 

ÞETTA ER SVOOOO GAMAN:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 11:06:38 / Kiddý

Sonurinn á afmæli...

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann LUBBI, hann á afmæli í dag :haha:

Litli strákurinn okkar á afmæli í dag, orðinn tveggja ára :haha: Ég er því á leiðinni heim til að dekra við hann. Hann bað um túnfisk og mjólk í afmæliskaffi og harðfisk í eftirrétt. :haha: Hann er bara sætastur..

Ég myndi setja mynd af kisa hérna, en ég er í vinnutölvunni þannig að ég verð því miður að sleppa því8|

Njótið dagsins elskurnar... við Lubbi ætlum allavega að slappa af og hafa það gott í góða veðrinu... Kári stakk af til eyja:!:  en kemur snemma á morgun:haha: og þá verður pallurinn tekinn í gegn! alltaf nóg að gera hjá manni!

ADIOS...


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 06:57:38 / Kiddý

Lífið er ljúft..

Blogga lítið í sumar!

 

Ég ætlaði nú alltaf að koma með ferðasöguna frá Boston hingað inn,  en ég held ég nenni því varla. Það er bara eitt orð yfir þessa ferð og það er SNILLD... Frábærir ferðafélagar, veðrið bara fínt, gistingin mjög góð og eigum við einhvað að ræða búðirnar :lol:Við Kári erum allavega að fara að fjárfesta í einni fallegri kommóðu til að koma öllu fyrir.. Það var líka voða ljúft að koma heim, hitta fólkið sitt og æi bara vera heima hjá sér 8| Ég á reyndar eftir að hitta hinn helminginn af fjölskyldunni, en það verður að bíða þar til á goslokum.:S

 

Framundan er endalaus vinna, maður verður jú að borga öll þessi föt og allt dótið en það er alveg þess virði...;)

 

Annað er svo sem ekki að frétta, er að vinna allar helgar fram að goslokum, þá mæti ég svæðið. Ég er orðin mjög spennt að koma, stelpur er ekki djamm hvernig er það? Ég kem allaveg með tollinn minn  :haha:   Ég er líka orðin einhvað agalega spennt fyrir þjóðhátíð.. :haha::haha: það verður geggjað!

 

Já eins og þið sjáið, er ekki mikið að frétta, ég er bara niðrí Hreyfingu ef þið þurfið að ná í mig, setti mig á allar helgar fyrir utan goslokin og þjóðhátíð 8|

 

Við verðum í bandi, njótið sumarsins :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 16:21:02 / Kiddý

Allt að gerast!

Snillingarnir mínir... 

Til hamingju með daginn elsku Lilja mín :D

Elsku Hanna Guðný mín. Til hamingu með daginn :D

Hafið það rosalega gott í dag og ég hugsa til ykkar frá Boston;)

Kveðja úr þrumum og rigningu8|

Kiddý verslunardama...:haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 14:56:31 / Kiddý

I don´t even know my name...

Góðan daginn :haha:

ég ákváð að senda inn smá línu frá Boston...

Héðan er allt frábært að frétta, mikið búið að versla... samt bara það sem vantaði auðvita hehe. Veðrið er búið að vera fínt rigning fyrsta daginn síðan bara þurrt og gott veður sólin kemur og fer...

Mikil stemming í hópnum, fórum t.d að djamma á CHEERS eða Staupastein á ísl.. og það var  hreint út sagt geðveikt gaman... mikið búið að hlæja alla ferðina... gistingin frábær og allt bara geggjað :haha:

Kem með ferðasögu þegar ég kem heim:D

Þetta er Kiddý sem talar frá Boston MA :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7